|
Kvikmyndahátíðin Hinsegin bíódagar verður haldin í Reykjavík 16.–26. mars. Fimmtudaginn 16. mars hefst hátíðin með sýningu á spænsku kvikmyndinni Bangsalingur og síðan er boðið til opnunarveislu í Iðnó. Allar sýningar hátíðarinnar verða í Regnboganum við Hverfisgötu og boðið er upp á mikið úrval nýrra og nýlegra kvikmynda sem vakið hafa athygli í austan hafs og vestan. Stjórnandi hátíðarinnar eru Hrafnhildur Gunnarsdóttir, en fjöldi fólks í hreyfingu samkynhneigðra kemur að undirbúningi hennar.

Hinsegin bíódagar eru óðum að eignast fastan sess í menningarlífi Reykjavíkur. Síðasta hátíð, í mars 2004, hlaut svo góðar undirtektir að nú hefur hreyfing okkar aftur tekið höndum saman við Regnbogann um kvikmyndaveislu á hinsegin nótum. Í þetta sinn er lögð áherlsa á það að kynna myndir sem lýsa ýmsu því sem menn vilja láta liggja í láginni, margt sem hinsegin fólk þegir líka um sjálft – af ótta við að verða misskilið og auðmýkt. En til að gefa tilverunni merkingu er mikilvægt að fjalla um alla þætti hennar. Líf og reynsla transgender fólks, lesbíur af lágstéttum og lítilsvirtum uppruna, hommar sem tala máli fasisma og nasisma, samkynhneigt fólk sem verður fyrir kynferðislegri eða trúarlegri valdbeitingu í æsku – þetta eru fáein dæmi um þá óvenjulegu fjölbreytni sem birtist á hvíta tjaldinu á þessari hátíð.
Hittumst undir regnboganum – í Regnboganum!
|