UM HÁTÍÐINA
MYNDIR
SÝNINGATÍMAR
AÐGÖNGUMIÐAR
STJÓRNENDUR
GESTIR
DÓMNEFND
UPPÁKOMUR
PRINT INFO
FRÉTTIR

Regnboginn
 
Kvikmyndamiðstöð ÍslandsReykjavíkurborg  


Hinsegin bíódagar 4-14 mars 2004

Opnunarmynd hátíðarinnar
Úr kvikmyndinni 'Já systir, nei systir'
Hátíðin hefst fimmtudaginn 4. mars með sýningu á hollensku kvikmyndinni Já systir, nei systir. Þar segir frá systur Kliviu sem stendur fyrir gisti- eða líknarheimili þar sem sundurleitur hópur fólks á öllum aldri á sér athvarf. Húsmóðirin ljómar eins og sólin þó að margt mæði á henni, einkum þó nágranninn Boordevol. Geðvonska hans á sér gildar skýringar, hann þekkir ekki sitt innsta eðli. Ástir og afbrýði, leyndar hvatir og máttur góðverkanna, hér ægir öllu saman í fjörugri söngva- og gamanmynd fyrir alla fjölskylduna.

Heimsfrægar heimildarmyndir
Af erlendum heimildarmyndum er fyrst að nefna Bróðir og utangarðsmaður – Ævi Bayards Rustin (Brother Outsider – The Life of Bayard Rustin). Bayard Rustin gerði opinskátt um kynhneigð sína löngu áður en hommar öðluðust hópum saman hugrekki til að standa opinberlega við tilfinningar sínar. Hann varð nánasti ráðgjafi Martins Luthers King og barðist við hlið hans en starfaði þó alla tíð í skugga leiðtogans. Samkynhneigð hans þótti hreinlega of mikil ögrun við hreyfingu bandarískra svertingja. Þessi snjalla heimildarmynd hefur unnið til fjölda verðlauna, m.a. á Sundance-kvikmyndahátíðinni í Bandaríkjunum og á Kvikmyndahátíðinni í Berlín.
Önnur merk heimildarmynd nefnist Pabbi og pápi (Daddy and Papa). Þar segja fjórar fjölskyldur sögur sínar – reynslusögur nokkurra karlmanna sem þráðu að gerast feður og koma börnum til manns. Hér er dregin upp áhrifamikil mynd af nýstárlegum fjölskyldugerðum og fjölskyldulífi á tímum mikilla breytinga og umbyltinga, enda er í Bandaríkjunum helst að finna nýja strauma í fjölskylduþróun samkynhneigðra í heiminum.

Kvikmyndin Róttækir hljómar (Radical Harmonies) er mynd fyrir alla sem hafa gaman af kvennatónlist. Löngu fyrir tíð Melissu Etheridge, Ani DiFranco og Indigo Girls varð til hópur í Bandaríkjunum sem ruddi kvennatónlist brautina. Þessar konur töluðu máli fjölbreytileika, femínisma og hins lesbíska lífstíls.

Spennumynd – með lesbísku ívafi
Eina eiginlega spennumynd hátíðarinnar kemur frá Noregi og nefnist Sæl eru þau sem þyrstir (Salige er de som tørster). Þessi vandaða spennumynd um lesbísku leynilögreglukonuna Hanne Wilhelmsen er byggð á sögu eftir Anne Holt, fyrrum dómsmálaráðherra Noregs, en nokkrar af sögum hennar hafa verið þýddar á íslensku.
Tvær myndir eftir Íslendinga
Á hátíðinni verða sýndar tvær myndir eftir Íslendinga. Önnur þeirra nefnist Aðalhlutverk: Rosa Furr (Starring: Rosa Furr) eftir Láru Martin sem hefur starfað sem kvikmyndagerðarkona um árabil í Bandaríkjunum. Sagan um Rosu Furr er gerð í stíl þöglu myndanna. Með verki sínu „endurritar“ leikstjórinn söguna með því að skipa lesbíum, hommum og svörtu fólki í þau hlutverk í kvikmyndasögunni þau aldrei léku og hér fá þeir kynþættir og þær kynhneigðir sem aldrei birtust í aðalhlutverkum að baða sig í sviðsljósinu.
Hin kvikmyndin er Hrein og bein eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttur og Þorvald Kristinsson, en í henni lýsir ungt samkynhneigt fólk lífi sínu í einlægum og persónulegum frásögnum. Þessi fyrsta íslenska heimildarmynd um lesbíur og homma hefur farið glæsta för um kvikmyndahátíðir heimsins. Meðal annars var hún kjörin Besta heimildarmyndin á stærstu kvikmyndahátíð samkynhneigðra í heiminum, San Francisco International Lesbian and Gay Film Festival, vorið 2003.

Ástir kvenna
Af leiknum kvikmyndum sem lýsa ástum kvenna er fyrst að nefna argentínsku myndina Skyndilega (Tan de repente) eftir Diego Lerman. Þar segir frá pönkurunum og lesbíunum Mao og Lenin sem hitta fyrir Marcíu, kindarlega afgreiðslustúlku í undirfataverslun í Buenos Aires og taka hana höndum. Skyndilega hefur slegið í gegn á hátíðum heimsins sl. ár og þykir gott dæmi um sköpunarkraft og margræðni argentískrar kvikmyndagerðar á okkar dögum.
Önnur vönduð kvennamynd er Alice eftir franska leikstjórann Sylvie Ballyot. Fátt er sagt í þessari sterku mynd en í staðinn er sögunni miðlað til okkar á áhrifamiklu myndmáli sem láta áhorfandanum eftir að túlka það sem raunverulega gerðist forðum daga í lífi hinnar frönsku Alice og heimtar nú útrás. Leikstjórinn, Silvie Ballyot, er óhrædd við að fara sínar eigin leiðir, og með leikurum sínum skapar hún ljóðræna og afar erótíska mynd.

Ástir karla
Þrjár leiknar kvikmyndir á Hinsegin bíódögum sækja efni sitt í reynsluheim ungra pilta og glímu þeirra við ástina. Þar er fyrst að nefna bandarísku myndina Yfir í Eden (Eden´s Curve) eftir Anne Misawa. Þar segir frá Peter, 18 ára strák sem er að hefja nám í yfirstéttarskóla á austurströnd Bandaríkjanna. Hann kemur úr auðugu og vernduðu umhverfi góðborgara og á satt að segja erfitt með að fóta sig í háskólaheiminum þar sem sterkar tilfinningar togast á.
Franska myndin Þú kemst yfir þetta (A Cause d´un garçon: Tu verras, ça te passera) eftir Fabrice Cazeneuve segir frá Vincent, laglegum og heillandi strák, leiðtoga í keppnisliði skólans í sundi. Einn af þeim sem virðist hafa fengið allt það sem einn strákur getur óskað sér. Mögnuð kvikmynd um unglinga – fyrir unglinga á öllum aldri.

Sú frægasta af þeim myndum sem hér um ræðir kemur frá Mexíkó og heitir því langa nafni Þúsund friðarský á himni, ást, aldrei hættir þú að vera ást (Mil nubes de paz cercan el cielo, amor, jamás acabaras de ser amor) og er eftir Julián Hernández. Þetta áhrifamikla verk hlaut Teddy-verðlaunin á Kvikmyndahátíðinni í Berlín 2003, en þau eru veitt fyrir besta framlag til kvikmyndagerðar samkynhneigðra í heiminum.

Rosa von Praunheim nemur land
Af myndum Hinsegin bíódaga er ein í algjörum sérflokki. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem kvikmynd eftir Rosu von Praunheim er sýnd í íslensku kvikmyndahúsi en hann hefur sannarlega sett mark sitt á kvikmyndasögu samkynhneigðra síðasta aldarfjórðung. Mynd hans nefnist Einstein hvatalífsins (Einstein des Sex) og segir frá miklum áhrifavaldi í sögu samkynhneigðra, Magnus Hirschfeld. Gyðingur, hommi, sósíalisti og læknir sem stofnaði fyrsta baráttuhóp homma í Berlín árið 1897. Hér sviðsetja leikarar undir stjórn Rosu söguna um Magnus, ástir hans og ástríður, baráttu, sigra og skipbrot í magnaðri mynd um löngu horfna tíð.

Vaxtarbroddur kvikmyndagerðar
Tvö stuttmyndasöfn verða sýnd á hátíðinni og nefnast þau „Piltar með piltum“ og „Stúlkur með stúlkum“. Slíkar sýningar njóta gríðarlegra vinsælda á erlendum kvikmyndahátíðum því að þar er ekki síst að finna margt það besta og djarfasta sem á boðstólum er í kvikmyndagerð samkynhneigðra í heiminum. Í safninu „Piltar með piltum“ er m.a. myndirnar Ef þú þorir (Chicken), Flöskustútur (Spin), Í slæmum félagsskap (En malas compañias) eftir einn af heiðursgestum hátíðarinnra, Antonio Hens, Ljúfar stundir (Fremragende timer), Morgunverður (Frühstück), Opinberunin (Åbenbaringen), Snúum þér (Target Audience), Úr dagbók karlhóru (Diary of a Male Whore) og Vinir (Freunde). Í safninu „Stúlkur með stúlkum“ eru m.a. myndirnar Á veiðum (Bartalk), D.E.B.S., Heim á jólum (Hjem til jul), Kallaðu mig Kade (Just Call Me Kade), Opinberunin (Åbenbaringen), Selma og Soffía (Selma och Sofie) og Tíu reglur (Ten Rules).

The Invisible Man
Bennett Singer á málstofu í hátíðarsal Háskóla Íslands Laugardaginn 6. mars kl. 10:30

Í tilefni af sýningu bandarísku kvikmyndarinnar Bróðir og utangarðsmaður – Bayards Rustin á Hinsegin bíódögum, mun annar höfundur myndarinnar, Bennett Singer, heimsækja Ísland og koma fram á málstofu í Háskóla Íslands laugardaginn 6. mars kl 10:30. Málstofa þessi er hluti af ráðstefnu um karlarannsóknir sem Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum (RIKK) stendur fyrir nú um helgina og er samstarfsverkefni Hinsegin bíódaga, Bandaríska sendiráðsins og RIKK. Ásamt Bennett Singer taka þátt í málstofunni dr. Deborah Hughes, sérfræðingur í afrísk-amerískum fræðum, dr. Sigríður Þorgeirsdóttir, Geir Svansson og Guðmundur Hálfdanarson. Á málstofunni verður sýnt brot úr kvikmynd þeirra Nancy Kates og Bennetts Singer, Brother Outsider, The Life of Bayard Rustin, sem einnig er sýnd tvisvar á Hinsegin bíódögum. Bennett Singer flytur stutt erindi um verk sitt og hlutskipti þeirra minnihlutamanna í Bandaríkjunum sem bæði eru svartir og samkynhneigðir. Að því loknu verða umræður og gestum gefst kostur á að leggja fyrirspurnir fyrir málshefjendur og skiptast á skoðunum við þá.

Bayard Rustin var nánasti ráðgjafi Martins Luthers King og barðist við hlið hans en starfaði þó alla tíð í skugga leiðtogans. Samkynhneigð hans þótti hreinlega of mikil ögrun við hreyfingu bandarískra svertingja. Bayard Rustin var sennilega þýðingarmesti skipuleggjandi og forvígismaður göngunnar miklu til Washington sem markar þáttaskil í sögu svartra í Bandaríkjunum. Þessi víðfræga heimildarmynd hefur unnið til fjölda verðlauna, m.a. á Sundance-kvikmyndahátíðinni í Bandaríkjunum.

Verðlaun hátíðarinnar
Sérstök dómnefnd veitir verðlaun næstsíðasta kvöld hátíðarinnar í Regnboganum, laugardagskvöldið 13. mars.Veitt verða þrenn verðlaun:

-Besta leikna kvikmyndin
-Besta heimildarmyndin
-Besta stuttmyndin

Í dómnefndinni Hinsegin bíódaga 2004 voru þau Elísabet Ronaldsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Jankees Boer og Sigursteinn Másson.

Hinsegin bíódagar 2006