CACHORRO
SPÁNN 2004. 35 MM. 100 MÍN. SPÆNSKA / ENSKUR TEXTI
LEIKSTJÓRI: MIGUEL ALBALADEJO
MEÐAL LEIKARA: JOSÉ LUIZ GARCÍA PÉREZ, DAVID CASTILLO, EMPAR FERRER, ELVIRA LINDO
Pedro lifir litríku samkvæmis- og næturlífi og á sér skrautlegan vinahóp meðal „bangsanna“ í borginni. En þegar Bernardo litli, systursonur hans, er sendur til hans í fóstur neyðist hann til að endurskoða líf sitt. Frændurnir eru miklir mátar, en óvænt atvik setur strik í reikninginn og ljóst er að sambúðin verður lengri en Pedro grunaði. Það er heldur ekkert grín fyrir óbugandi samkvæmisljón að takast á við föðurhlutverkið og ætla jafnframt að halda sínum gamla lífsstíl til streitu. Þessi meinfyndna og ljúfsára verðlaunamynd hefur vakið mikla athygli og hrifningu fyrir efnistök sín. Því að Pedro er enginn unglingur lengur og kynhneigðin vefst ekki fyrir honum, en lífsreynslan fer þó fyrir lítið þegar hann stendur frammi fyrir því að axla ábyrgð á litlu barni.
English summary
BEAR CUB: Pedro’s world gets turned on its head when he has to look after his young nephew, as his attempt to act as a responsible father leaves him in great doubts about himself. A humorous and challenging film of an admirable emotional range.
Sýningartímar:
Fimmtudagur 16. mars kl. 20
Laugardagur 18. mars kl. 20
Sunnudagur 26. mars kl. 16
Í vali dómnefndar um titilinn:
Besta leikna kvikmynd Hinsegin bíódaga 2006
Fara aftur í yfirlit |