GYPO
BRETLAND 2005. BETA. 98 MÍN. ENSKA
LEIKSTJÓRI: JAN DUNN
MEÐAL LEIKARA: PAULINE MCLYNN, CHLOE SIRENE, PAUL MCGANN, RULA LENSKA, FREDDIE CONNOR
Helen og Paul eru lífsþreytt verkafólk og lifa í dauflegu og köldu hjónabandi þar sem hver dagur er öðrum líkur, föst í gildrum fátæktar og fáfræði. Dag einn kemur dóttirin heim með nýja vinkonu, sígaunastúlku sem flúið hefur austan úr Tékklandi og bíður þess að fá breskt vegabréf og ávísun á „frelsið“ eins og fjölskyldan kallar aðstæður sínar. Í þremur sögum, frá þrenns konar sjónarhóli, birtist líf þessa fólks, þar sem áleitnar spurningar um uppruna og kynþætti, leyfilegar og óleyfilegar ástir, völd og valdaleysi, fléttast saman á grátbroslegan og átakanlegan hátt. Kvikmyndin sækir innblástur sinn í aðferðir Dogma-myndanna svokölluðu og hefur hlotið einróma lof áhorfenda og gagnrýnenda. Leikstjórinn, Jan Dunn, er viðstödd frumsýninguna
English summary
GYPO: Into the lives of Helen and Paul comes Tasha, a Romany Czech refugee, awaiting her British passport and her chance for freedom. Told in three revelatory narratives, Gypo reveals how the disintegration of an ordinary working class family finally comes to a head when unexpected emotions are unleashed.
Sýningartímar:
Laugardagur 18. mars kl. 18
Mánudagur 20. mars kl. 20
Í vali dómnefndar um titilinn:
Besta leikna kvikmynd Hinsegin bíódaga 2006
Fara aftur í yfirlit |