MÄNNER, HELDEN UND SCHWULE NAZIS
ÞÝSKALAND 2005. DVD. 90 MÍN. ÞÝSKA / ENSKUR TEXTI
HÖFUNDUR: ROSA VON PRAUNHEIM
Það er staðreynd að hommar taka stundum pólitíska afstöðu á hægri væng öfganna og gerast virkir í hreyfingu nýnasista þó að samkynhneigt fólk hafi fyrr og síðar sætt ofsóknum og niðurlægingu af hálfu þessara sömu öfgaafla. Jafn óþægileg er sú staðreynd að ýmsir af hugmyndasmiðum helfararinnar á fimmta áratugnum voru hommar. Öllum þessum viðkvæmu þversögnum er teflt saman í ögrandi heimildarmynd þar sem rætt er við fjóra þýska nýnasista og rýnt á gagnrýninn hátt í sögu Þjóðverja með aðstoð róttækra sagnfræðinga. Úr ýmsum áttum er varpað ljósi á kynhneigðir og pólitískar hneigðir, mannúð og grimmd og hvergi reynt að fegra og gylla mannlífið. Til að skilja og læra verðum við að þekkja og vita.
English summary
HEROES AND GAY NAZIS: Chilling testimonies of German past and stories of four gay men, engaged in right-wing political parties, are intertwined with interviews by left-leaning journalists and intellectuals who have followed fascism’s course through German history. Rosa von Praunheim conveys their deeply contradictory lives in a refreshingly unbiased way.
Sýningartímar:
Sunnudagur 19. mars kl. 16
Í vali dómnefndar um titilinn:
Besta heimildarkvikmynd Hinsegin bíódaga 2006
Fara aftur í yfirlit |