UM HÁTÍÐINA
MYNDIR
SÝNINGATÍMAR
AÐGÖNGUMIÐAR
STJÓRNENDUR
GESTIR
DÓMNEFND
UPPÁKOMUR
PRINT INFO
FRÉTTIR

Kvikmyndahúsið Regnboginn er samstarfsaðili hátíðarinnar. Hinsegin bíódagar þakka stjórnendum Regnbogans ómetanlega samvinnu og stuðning.


SÍÐARI DAGAR

 

 

LATTER DAYS
BANDARÍKIN 2003. 35 MM. 107 MÍN. ENSKA
LEIKSTJÓRI: C. JAY COX
MEÐAL LEIKARA: WES RAMSEY, STEVE SANDVOSS, JACQUELINE BISSET, JOSHEPH GORDON-LEVITT

Christian er sannkallaður djammbolti og telur sig vera að njóta þess besta sem lífið hefur upp á bjóða með stanslausum partíum, drykkjuskap og nýjum bólfélaga í hverri viku. En þáttaskil verða í lífi hans þegar Aaron, nítján ára gamall mormóni og trúboði, flytur í næstu íbúð. Christian gerir hosur sínar grænar fyrir Aaron sem á erfitt með að standast þennan fallega strák en þykir hann grunnhygginn og kaldur og hafnar honum. Hvorugur er þó ósnortinn eftir þessi kynni. Christian áttar sig á því að hann þarf að hugsa sinn gang og endurmeta hvað máli skiptir í lífinu. Aaron verður ljóst að hann getur ekki lengur flúið eigin samkynhneigð, hann verður að takast á við hana og það miskunnarlausa trúarumhverfi sem hann ólst upp í.

English summary
LATTER DAYS: Christian, a hunky party boy, gets more than he bargains for when he tries to seduce 19 year old Aaron, a sexually confused Mormon missionary who moves into his apartment complex. A charming, sexy, and moving tale about the transformational power of love.

Sýningartímar:
Föstudagur 17. mars kl. 20
Laugardagur 18. mars kl. 22
Sunnudagur 19. mars kl. 22

Fara aftur í yfirlit

 

Hinsegin bíódagar 2006