MYSTERIOUS SKIN
BANDARÍKIN 2004. 35 MM. 99 MÍN. ENSKA
LEIKSTJÓRI: GREGG ARAKI
MEÐAL LEIKARA: JOSEPH GORDON-LEVITT, BRADY CORBET, ELIZABETH SHUE, BILL SAGE
Þótt ungir séu að árum, aðeins átján ára, hafa þeir Neil og Brian mátt þola margt um ævina. Í huganum er undarlegt svarthol sem tengist sameiginlegri reynslu og engin leið að muna hvað gerðist. En þessi erfiða reynsla hefur leitt þá á ólíkar brautir. Brian er þjakaður af martröðum og ímyndar sér að geimverur kunni að hafa numið hann brott, en Neil lifir háskalegu lífi sem vændisstrákur og skeytir engu um hættuna sem líferni hans hefur í för með sér. Leitin að ástinni rekur Neil til New York og þangað eltir Brian hann í þeirri vissu að í sameiningu verði þeir að rjúfa svartholið og ryðjast gegnum myrka fortíð sína til að finna framtíðina. Enn eitt meistaraverk eftir Gregg Araki, höfund The Living End og Totally F***ed Up.
English summary
MYSTERIOUS SKIN: Plagued by nightmares, Brian believes that he may have been the victim of an alien abduction. Neil is the ultimate beautiful outsider, a teenage hustler. His pursuit of love leads him to New York City, while Brian's voyage of self discovery leads him to Neil – who helps him to unlock the dark secrets of their past.
Sýningartímar:
Miðvikudagur 22. mars kl. 20
Fimmtudagur 23. mars kl. 22
Í vali dómnefndar um titilinn:
Besta leikna kvikmynd Hinsegin bíódaga 2006
Fara aftur í yfirlit
|