PROTEUS
KANADA / SUÐUR-AFRÍKA 2003. 35 MM. 97 MÍN. ENSKA, AFRIKAANS OG NAMA / ENSKUR TEXTI
LEIKSTJÓRI: JOHN GREYSON
MEÐAL LEIKARA: ROUXNET BROWN, SHAUN SMYTH, NEIL SANDILANDS, KRISTEN THOMSON
Suður-Afríka 1725. Ungur hirðingi af ættum Khoi-manna er fundinn sekur um að hafa eignað sér nautgripi hvítu nýlenduherranna og hnepptur í þrældóm á Robben-eyju (en þar sat Nelson Mandela löngu síðar í fangelsi). Þar hittir hirðinginn hollenskan sjóliða sem hefur hlotið dóm fyrir saurlifnað, sódómíu, og þeir verða elskendur. Ástin sú reynist þeim afdrifarík. Úr þessum sögulega efniviði skapar John Greyson ögrandi og ástríðufullt listaverk um ólöglegar ástir og ólöglegt samneyti kynþáttanna. Með því að flakka milli fortíðar og nútíðar í sviðsetningunni nær leikstjórinn að skírskota til þess veruleika sem við lifum. Saga undirokaðra kynþátta og saga samkynhneigðra ásta fléttast saman og öðlast víddir handan við stað og stund.
English summary
PROTEUS: South Africa 1725: a native herder, sentenced to hard labor, encounters a Dutch sailor imprisoned for sodomy. They begin an affair that progresses from animal sexuality to honest intimacy. By use of anachronistic touches, Proteus allows us to rethink the scope of gay history and reclaim two lives that speak to us today.
Sýningartímar:
Mánudagur 20. mars kl. 20
Miðvikudagur 22. mars kl. 22
Fara aftur í yfirlit |