PREY FOR ROCK’N ROLL
BANDARÍKIN 2003. BETA. 104 MÍN. ENSKA
LEIKSTJÓRI: ALEX STEYERMARK
MEÐAL LEIKARA: GINA GERSHORN, DREA DE MATTEO, LORI PETTY, SHELLY COLE
Þessi magnaða kvikmynd er byggð á söngleik eftir bandaríska rokkarann og húðflúrarann Cheri Lovedog og styðst við sögu hennar sjálfrar. Kraftur og kynþokki, rokk og ról einkenna þessa sérstæðu og eftirminnilegu sögu, sem hlotið hefur gífurlegar vinsældir um allan heim. Þar segir frá Jacki (Gina Gershorn) og stelpnabandinu hennar, Clamdandy, sem hefur árum saman verið næstum því við það að slá í gegn. Nú stendur Jacki á krossgötum. Hún verður að ákveða hvort hún ætli að efna heitið sem hún strengdi fyrir mörgum árum: Að hætta í bransanum hafi henni ekki tekist að meika það fyrir fertugt. En þá loksins fara hjólin að snúast, hljómplötusamningur virðist í uppsiglingu og engin leið að hætta. Frægðin kostar þó sitt og rokkararnir uppgötva brátt harðan og heitan sannleikann um kynlíf, dóp, rokk og ról.
English summary
PREY FOR ROCK’N ROLL: Based on the autobiographical musical by LA singer/songwriter and tattoo artist Cheri Lovedog, this wonderful film tackles the rise and fall of almost becoming famous in Clamdandy, her band of twenty years.
Sýningartímar:
Sunnudagur 19. mars kl. 20
Sunnudagur 26. mars kl. 22
Fara aftur í yfirlit |