SANCHARRAM
INDLAND 2004. DVD. 107 MÍN. ENSKA
LEIKSTJÓRI: LIGY J. PULLAPPALLY
MEÐAL LEIKARA: SUHASINI NAIR, SHRUITI MENON, SYAM SEETHAL
Í þorpinu Kerala á Indlandi ráðstafa foreldrarnir dætrum sínum í hjónaband og þær ráða engu þar um. Kiran og Delilah eru bestu vinkonur, en þegar Kiran verður ástfangin af vinkonu sinni verður hún svo hrædd um að missa vináttu hennar að hún gerir allt til þess að fela tilfinningar sínar. Hún gengur svo langt að skrifa ástarbréf til Delilah fyrir feiminn skólafélaga þeirra sem líka er ástfanginn af henni. Þegar Delilah uppgötvar að það var Kiran sem skrifaði bréfin, kvikna heitar tilfinningar sem hafa afdrifaríkar afleiðingar. Stúlkurnar skilja að lífið er erfitt ferðalag og að þær verða að standa með sjálfum sér. Sannkallað meistaraverk sem unnið hefur til verðlauna á virtustu kvikmyndahátíðum heimsins.
English summary
THE JOURNEY: Raised as neighbours, Kiran and Delilah lead inseparable lives until Kiran starts fearing her sexual desire for her friend. Once the gossipy community discovers the true nature of their relationship, the girls are forced to confront the thunderous response of prejudice.
Sýningartímar:
Föstudagur 17. mars kl. 18
Fimmtudagur 23. mars kl. 20
Í vali dómnefndar um titilinn:
Besta leikna kvikmynd Hinsegin bíódaga 2006
Fara aftur í yfirlit
|