UM HÁTÍÐINA
MYNDIR
SÝNINGATÍMAR
AÐGÖNGUMIÐAR
STJÓRNENDUR
GESTIR
DÓMNEFND
UPPÁKOMUR
PRINT INFO
FRÉTTIR

Kvikmyndahúsið Regnboginn er samstarfsaðili hátíðarinnar. Hinsegin bíódagar þakka stjórnendum Regnbogans ómetanlega samvinnu og stuðning.


STELPUR MEÐ STELPUM – SAFN STUTTMYNDA

 

 

BEÐMÁL Á BARNUM (BUTCH IN THE CITY) LEIKSTJÓRI: TOD BRODER. BANDARÍKIN 2003

HVAÐ ER Í SKÁPNUM? (KATHLEEN’S CLOSET) LEIKSTJÓRI: SHEILA JORDAN. KANADA 2005
HVER SVO SEM ÞÚ ERT (HVEM DU END ER) LEIKSTJÓRI: MARTIN STRANGE-HANSEN. DANMÖRK 2004

HVOR ER OFAN Á? (WHO IS THE TOP?) LEIKSTJÓRI: JENNIE LIVINGSTON. BANDARÍKIN 2004

HÆ MAJA (HOY MAYA) LEIKSTJÓRI: LAURA ZIMMERMANN. SVISS 2003

YFIRVARASKEGG (MOUSTACHE) LEIKSTJÓRI: VICKY SUGARS. ÁSTRALÍA 2004

Vel rúnaðar, með nokkrum eikarkeim en þó nautnalegri fyllingu. Rómantík, erótík, fyndni, fantasía og barneignir á matseðlinum í þessari kvikmyndaveislu.

BEÐMÁL Á BARNUM: Hvað gerist þegar strákslegu stelpurnar ákveða að veiða sér karlmann? Ekki nákvæmlega það sama og í Beðmálum í borginni. HVAÐ ER Í SKÁPNUM?: Þar sem hún vakir yfir dánarbeði Kathleen gömlu fer hún að gramsa í skápum gömlu konunnar og gleður þannig ungt hjarta Kathleen áður en hún kveður veröldina. HVER SVO SEM ÞÚ ERT: Lisbeth og Rosu langar til að eignast barn en leiðin getur stundum verið löng og ströng. HVOR ER OFAN Á?: Erótísk og raunsæ mynd um leiðir kvenna til að krydda tilveruna. Sælgæti fyrir auga og sál eftir Jennie Livingstone sem gerði hina frábæru París brennur. HÆ MAJA: Tvær eldri konur hittast á hárgreiðslustofu, þær þekkjast frá gamalli tíð og vilja sem minnst af fortíðinni vita. En þráin er á vísum stað. YFIRSKEGG: Örvæntingarfull húsmóðir uppgötvar sinn innri mann. Það er eins og við (eigin)manninn mælt: Hjónabandið blómstrar.

Sýningartímar:
Þriðjudagur 21. mars kl. 20
Föstudagur 24. mars kl. 18

Í vali dómnefndar um titilinn:
Allar kvikmyndirnar í þessu safni stuttmynda eru í vali dómnefndar um titilinn: Besta stuttmynd Hinsegin bíódaga 2006

Fara aftur í yfirlit

 

Hinsegin bíódagar 2006