AÐ ÞORA (DARE) LEIKSTJÓRI: ADAM SALKY. BANDARÍKIN 2004
CADILLAC BLÚS (CADILLAC BLUES) LEIKSTJÓRI: MAZEN KHALED. LÍBANON 2003
FIMMTÁN, EKKI Á FÖSTU (LONELY 15) LEIKSTJÓRI: FRANK MOSWOLD. NOREGUR 2004
HÓMÓLÚLÚ (THE HOMOLULU SHOW) LEIKSTJÓRI FRANK MOSWOLD. NOREGUR 2004
Í ÞREIFANDI MYRKRI (BACKROOM) LEIKSTJÓRI: GUILLEN MORALES. SPÁNN 1999
KIRKJUGARÐUR (BROMPTON) LEIKSTJÓRI: AXEL PETERSEN. BRETLAND 2003
KRISTÓFER OG GORDY (CHRISTOPHER & GORDY) LEIKSTJÓRI: FRANK MOSWOLD. NOREGUR 2004
LÍF RYANS (RYAN’S LIFE) LEIKSTJÓRI: NICK WAUTERS. BANDARÍKIN 2004
AÐ ÞORA: Tveir strákar stinga sér til sunds. Á hann að þora að láta verða af því sem hugurinn þráir? CADILLAC BLÚS: Hann veit hvað hann vill og veit líka að menning hans vill það ekki. Eftirminnileg rödd úr heimi piltanna í Beirút. FIMMTÁN, EKKI Á FÖSTU: Þegar maður er fimmtán ára skiptir stærðin vissulega máli. En stærð hvers? HÓMÓLÚLÚ: Við hjónin erum að velta því fyrir okkur hvort hjónabandinu stafi ekki beinlínis ógn af hjónavígslu gagnkynhneigðra, ég meina það. Í ÞREIFANDI MYRKRI: Á skemmtistað á Spáni heyrum við hugsanir gestanna. Hugur og hönd eiga ekki alltaf samleið. KIRKJUGARÐUR: Brompton-kirkjugarðurinn í London er vinsæll meðal karlmanna sem vilja ástir án orða en ekki eru allir sáttir við ástandið. KRISTÓFER OG GORDY: Kristófer er góður strákur sem er grátt leikinn af dusilmenninu Gordy. En Guð stendur með þeim réttlátu. LÍF RYANS: Lífið væri vissulega einfaldara ef maður gæti fengið próf úti í apóteki sem segði til um kynhneigðina. En Ryan þarf að ráða fram úr sínum málum sjálfur.
Sýningartímar:
Sunnudagur 19. mars kl. 18
Laugardagur 25. mars kl. 18
Í vali dómnefndar um titilinn:
Allar kvikmyndirnar í þessu safni stuttmynda eru í vali dómnefndar
um titilinn: Besta stuttmynd Hinsegin bíódaga 2006
Fara aftur í yfirlit |