UM HÁTÍÐINA
MYNDIR
SÝNINGATÍMAR
AÐGÖNGUMIÐAR
STJÓRNENDUR
GESTIR
DÓMNEFND
UPPÁKOMUR
PRINT INFO
FRÉTTIR

Kvikmyndahúsið Regnboginn er samstarfsaðili hátíðarinnar. Hinsegin bíódagar þakka stjórnendum Regnbogans ómetanlega samvinnu og stuðning.


HANN SJÁLFUR, PETER BERLIN
 

 

THAT MAN: PETER BERLIN
BANDARÍKIN 2005. BETA. 80 MÍN. ENSKA
HÖFUNDUR: JIM TUSHINSKI

Fyrir aldarfjórðungi var varla til það unglingaherbergi á Vesturlöndum að Peter Berlin væri þar ekki að finna uppi á vegg. Síðhærður og svolítið ósvífinn í eigin upphafningu, karlmannlega vaxinn og í svo níðþröngum gallabuxum að þær rugluðu unga og gamla gjörsamlega í ríminu. Hann lék í kvikmyndum sem fóru lágt en urðu hálfgerðar þjóðsögur og starfaði sem módel með meisturum á borð við Robert Mapplethorpe og Andy Warhol. Þó vissu fæstir hver hann raunverulega var. Hér leggur Peter spilin á borðið á fyndinn og opinskáan hátt í verðlaunamynd sem hlotið hefur miklar vinsældir. Hann sýnir spennandi kvikmyndabrot úr einkasafni sínu og talar um muninn á manneskjunni og þjóðsögninni, ástinni og girndinni, gleðinni og sorginni, í ögrandi og heiðarlegri frásögn.

English summary
THAT MAN PETER BERLIN: He was the poster boy for the hedonistic and sexually-liberated 1970s and portrayed himself as an erotic, unobtainable fantasy, oozing in eroticism. But who was Peter Berlin? The film gives us opportunity to get to know the man behind the myth.

Sýningartímar:
Föstudagur 17. mars kl. 22
Mánudagur 20. mars kl. 18

Í vali dómnefndar um titilinn:
Besta heimildarkvikmynd Hinsegin bíódaga 2006

Fara aftur í yfirlit

 

Hinsegin bíódagar 2006