UM HÁTÍÐINA
MYNDIR
SÝNINGATÍMAR
AÐGÖNGUMIÐAR
STJÓRNENDUR
GESTIR
DÓMNEFND
UPPÁKOMUR
PRINT INFO
FRÉTTIR

Kvikmyndahúsið Regnboginn er samstarfsaðili hátíðarinnar. Hinsegin bíódagar þakka stjórnendum Regnbogans ómetanlega samvinnu og stuðning.


EINU SINNI VAR ... KYNVILLA – DROTTNING Á LINCOLN ROAD – LÍF TIL EINSKIS

 

 

EINU SINNI VAR ... KYNVILLA. ÍSLAND 2005. BETA. 28 MÍN. HÖFUNDUR: EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR
QUEEN OF LINCOLN ROAD. BANDARÍKIN 2004. BETA. 20 MÍN. ENSKA. HÖFUNDUR: ERIC SMITH
UMSONST GELEBT. ÞÝSKALAND 2005. DVD. 16 MÍN. ÞÝSKA / ENSKUR TEXTI
HÖFUNDUR: ROSA VON PRAUNHEIM

Litið til fortíðar í þremur kvikmyndum: Í Einu sinni var ... kynvilla rifja Elías Mar og Þórir Björnsson upp löngu liðna daga þegar strákar komu saman á Hótel Borg og á Laugavegi 11 til að hitta aðra stráka, á tímum þagnar og feluleiks, þegar hommar hétu „kynvillingar“ í munni góðra borgara. Irene Williams er sannkölluð Drottning á Lincoln Road suður í Flórída, og þótt hún sé hvorki lesbía né hommi er útgeislun hennar eins „gay“ og fjarri gráum hversdagsleikanum og hugsast getur. Walter þykir hann hafa átt Líf til einskis eftir áralanga vist í vinnubúðum nasista í Sachsenhausen og rétt fyrir dauða sinn fyrir nokkrum árum leysti hann frá skjóðunni. Áhrifamikil ábending til allra manna um að meta lífið einhvers.

English summary
Three short films where the oldest generation speaks up. ONCE UPON A TIME: Two gentlemen reminisce gay life in Reykjavík fifty years ago. QUEEN OF LINCOLN ROAD: Irene is not gay but there is certainly something gay about her unique radiation. LIFE IN VAIN: Walter Schwarze, once a Sachsenhausen prisoner, recalls the sufferings of the past.

Sýningartímar:
Laugardagur 18 mars. kl. 16
Fimmtudagur 23. mars kl. 18

Í vali dómnefndar um titilinn:
Besta heimildarkvikmynd Hinsegin bíódaga 2006

Fara aftur í yfirlit

Hinsegin bíódagar 2006