UM HÁTÍÐINA
MYNDIR
SÝNINGATÍMAR
AÐGÖNGUMIÐAR
STJÓRNENDUR
GESTIR
DÓMNEFND
UPPÁKOMUR
FRÉTTIR

Regnboginn
 
Kvikmyndamiðstöð ÍslandsReykjavíkurborg  


Fréttir

26.3.2006
Lokahátíð Hinsegin bíódaga
Laugardagskvöldið 25. mars var lokahátíð Hinsegin bíódaga haldin í Þjóðleikhúskjallaranum. Þar var tilkynnt hvaða hvaða myndir hlutu verðlaun hátíðarinnar fyrir "Bestu heimildarmynd", "Bestu stuttmynd" og "Bestu leiknu kvikmynd" Hinsegin bíódaga 2006. Hannes Páll Pálsson tilkynnti hvaða myndir hefðu borið sigur úr býtum í flokki heimildar- og stuttmynda. Besta stuttmynd var valin Hver svo sem þú ert - Hvem du end er eftir Martin Strange-Hansen frá Damörku. Besta heimildarmynd var valin Hann sjálfur, Peter Berlin - That Man, Peter Berlin eftir Jim Tushinski frá Bandaríkjunum. Þá tilkynnti Felix Bergsson að kvikmyndin Dularfull Snerting - Mysterious Skin eftir Gregg Araki frá Bandaríkjunum hefði hlotið verðlaun dómnefndar sem "Besta leikna kvikmynd" Hinsegin bíódaga 2006. Verðlaunamyndirnar verða sýndar á lokadegi hátíðarinnar sunnudqginn 26. mars

Kl. 18 Hann sjálfur Peter Berlin / Hver svo sem þú er
Kl. 20 Dularfull snerting.

23.3.2005
Hinsegin bíódagar í Regnboganum - punktar að viku liðinni

Laugardagurinn hófst á sýningu Einu sinni var … kynvilla en margir muna eflaust eftir þessum þætti úr þáttaröð Evu Maríu Jónsdóttur. Annar viðmælenda þáttarins, Elías Mar, var sjálfur viðstaddur sýninguna ásamt þeim Evu Maríu og Margréti Jónasdóttur og svöruðu þau spurningum bíógesta að sýningu lokinni. Því miður reyndist sýningin ekki nógu vel sótt og helst skorti fulltrúa yngri kynslóðarinnar í bíósalnum. Slík sýning sem þessi, stútfull af mikilsverðum sögulegum og persónulegum fróðleik um samkynhneigð og sér í lagi homma á Íslandi á liðinni öld ætti að vera skyldusýning fyrir unga homma og lesbíur. Þótt virðing og fordómaleysi gagnvart samkynhneigðum hafi aukist mjög á undanförnum árum og áratugum þarf ekki að leita langt aftur til að finna sláandi dæmi um hið gagnstæða. Það er ekki sjálfsagt mál að geta verið opinberlega út úr skápnum á Íslandi án teljandi mótstöðu, og það má ekki gleymast.

Áðurnefnd Sígaunapakk var frumsýnd síðar um kvöldið að viðstöddum höfundum myndarinnar, leikstjóranum Jan Dunn og framleiðandanum Elaine Wickham. Myndin vakti mikla hrifningu áhorfenda en hún er tekin upp eftir dönsku Dogma-reglunum sem Íslendingum eru að góðu kunnar í kjölfar vinsælda danskra mynda í þeim stíl, svo sem Veislunnar (Festen). Líkt og danskættaður fyrirrennari sinn hefur Sígaunapakk hlotið gífurlega athygli víða um heim og var meðal annars sýnd á hinum virtu kvikmyndahátíðum í Cannes og Edinborg. Ennfremur hlaut myndin „Levis Best First Time Feature“-verðlaunin á San Francisco International Lesbian and Gay Film Festival sem er ein stærsta hinsegin kvikmyndahátíð sem til er. Jan og Elaine svöruðu spurningum áhorfenda eftir sýninguna og greindu meðal annars frá því að eftir velgengni Sígaunapakks væru þær komnar með fjármagn fyrir næstu mynd sína. Eftir sýninguna skunduðu stúlkurnar tvær ásamt þeim íslensku á Góugleði KMK sem haldin var á Kaffi Reykjavík. Þar fengu þær að kynnast ekta íslensku ballstuði. Á sunnudeginum voru þær svo sendar í Bláa lónið sem aldrei klikkar og voru þær á endanum svo ánægðar með ferðina að þær reifuðu það að koma jafnvel aftur í framtíðinni og taka upp mynd á Íslandi.

Elaine Wickham framleiðandi Gypo og Jan Dunn leikstjóri.

Í gær, þriðjudag, voru svo tvær mjög sterkar sýningar. Fyrst í röðinni voru myndirnar Transplosion eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur og 100% manneskja (100% menneske) eftir Trond Winterkjær og Jan Dalchow sýndar saman. Transplosion segir á næman hátt frá lífi og reynslu „transgender“ fólks á Íslandi og voru allar fjórar stúlkurnar sem rætt var við í myndinni mættar á sýninguna, sannkallaðar hversdagshetjur. 100% manneskja fylgdi í kjölfarið en þar er á ferðinni ótrúleg heimildarmynd sem brýtur allar hefðbundnar reglur heimildarmyndagerðar en kemst alfarið upp með það vegna þess hve viðfangsefnið er einstaklega „brilljant“. Hin sýningin var stuttmyndaprógram stelpnanna. Fyrir sýninguna ríkti gífurleg eftirvænting í salnum og var augljóst að sá mikli fjöldi gesta sem þar var saman kominn var afar spenntur fyrir stuttmyndunum, enda um geysilega sterkt prógramm að ræða með fjölmörgum glæsilegum og vel unnum stuttmyndum. Við hvetjum jafnframt strákana til að láta stelpnaprógrammið ekki framhjá sér fara – svo frábært er það!

Aðsóknin á hátíðina hefur verið með besta móti en betur má ef duga skal enda var markið sett hátt: 2000 gestir. Núna þegar hátíðin er hálfnuð er gestafjöldi kominn upp í um 900 manns. Enn eru þá fimm dagar ótaldir og eru vonir aðstandenda bundnar við að brjóta að minnsta kosti 1500 gesta múrinn. Þegar hátíðin var haldin síðast fyrir tveimur árum náðu aðsóknartölur 1100 manns þannig að gera má ráð fyrir talsverðri fjölgun á þessari hátíð.

Hér hafa aðeins örfáar af þeim fjölmörgu meistaraverkum hátíðarinnar verið nefndar enda hafa sumar myndirnar ekki enn verið teknar til sýninga. Þar ber umdeilanlega hæst kvikmyndina Dularfull snerting (Mysterious Skin) sem er frumsýnd í kvöld, miðvikudag klukkan 20:00. Hér er á ferðinni mögnuð mynd eftir Bandaríkjamanninn Gregg Araki sem treysti sig í sessi sem einn frumkvöðla nýbylgjunnar í kvikmyndagerð samkynhneigðra með myndum á borð við The Living End og Totally F***ed Up. Enn eru ótaldar fjölmargar aðrar gæðamyndir sem svíkja engan.

-BKS

17.3.2005
Hinsegin bíódagar opnaðir

Fjölmennt var í Regnboganum fimmtudaginn 16. mars þegar Hinsegin bíódagar hófust með glæsibrag. Anddyri Regnbogans fylltist rétt fyrir klukkan átta af fögrum hópi kvikmyndaáhugamanna sem voru mættir til að sjá spænsku verðlaunamyndina "Bangsaling" (Cachorro), opnunarmynd hátíðarinnar. Ekki var annað að sjá en að bíógestir skemmtu sér konunglega og gaf myndin forsmekk af þeim fjölmörgu frábæru myndum sem eru til sýninga á hátíðinni.

Að sýningu lokinni hélt hópurinn að Iðnó við Tjarnarbakka þar sem boðið var upp á gómsætar veitingar og drykki. Eins og sést á meðfylgjandi myndum var stemningin í Iðnó með besta móti og opnunarhátíðin vel heppnuð í alla staði.

Hinsegin bíódagar standa yfir til 26. mars og er boðið upp á frábært úrval mynda á degi hverjum. Þeir sem misstu af "Bangsaling" á Opnunarhátíðinni geta því séð hana bæði laugardaginn 18. mars kl. 20.00 og sunnudaginn 26. mars kl. 16.00. Frekari upplýsingar um hátíðina má finna á www.hinbio.org.

8.3.2005
Líf og reynsla transgender fólks

Susan Stryker flytur fyrirlestur um reynslu þeirra sem skipt hafa um kyn

Um þessar mundir efna Samtökin ´78 til hádegisfyrirlestra í Háskóla Íslands í samvinnu við félagsvísindadeild HÍ, hugvísindastofnun HÍ, RIKK, rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum, Mannréttindaskrifstofu Íslands og FSS, Félag STK-stúdenta.

Sex fyrirlestrar eru á dagskrá á vormisseri og sá fjórði í röðinni er haldinn föstudaginn 10. mars. Þar mun Susan Stryker, fræðimaður frá Kaliforníu, flytja fyrirlestur sem hún nefnir

An Introduction to Transgender Studies
A personal and professional account

Susan Stryker lauk doktorsprófi í sagnfræði frá University of California 1992 en stundaði síðan rannsóknir við Stanford University og stýrði um árabil LGBT Historical Society í San Francisco. Susan Stryker er heimsþekkt fyrir framlag sitt til upplýstrar umræðu um líf og reynslu transgender-fólks og hefur sent frá sér fjölda fræðigreina og ritstýrt safnritum um það efni. Eftir hana liggja tvö vinsæl heimildarit, Gay by the Bay og Queer Pulp, og hún er annar höfundur heimildamyndarinnar Screaming Queens (Skrækjandi drottningar) sem sýnd er á Hinsegin bíódögum nú síðar í mars.

Í fyrirlestri sínum fjallar Susan um reynslu sína sem yfirlýst transsexual manneskja í bandarísku fræðasamfélagi, upphaf fræðirannsókna um transgender-reynslu á síðasta áratug, samband þeirra fræða við kvennafræði og hinsegin fræði og mögulegt gildi þeirra fyrir félags- og hugvísindi framtíðarinnar.

Fyrirlesturinn er haldinn í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, og hefst kl. 12:00 á hádegi 10. mars. Að honum loknum gefst áheyrendum kostur á að bera fram spurningar og taka þátt í stuttum umræðum

 

Hinsegin bíódagar 2006